Eldri verk:

   

Sýnishorn af eldri verkum:

 

ALLT ANNAÐ LÍF 
Dulúð og spenna í fortíð og nútíð. Allt annað líf eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur er sjálfstætt framhald sögunnar Sjáumst aftur. Katla ræður sig sem barnfóstru vestur í Stykkishólm. Þar kynnist hún brátt undarlegri stelpu og ömmu hennar sem er ekki öll þar sem hún er séð. Katla sogast inn í dularfulla atburðarás þar sem klaustrið á Helgafelli kemur við sögu. Hún verður að sýna hvað í henni býr ef ekki á illa að fara og takast á hendur ferð sem enginn veit hvaða afleiðingar getur haft. Eins og í fyrri bókum sínum tekst Gunnhildi Hrólfsdóttur að flétta listilega saman nútímann og sögulega atburði og útkoman er afar spennandi saga fyrir stráka og stelpur.

 

  ÞAÐ SEM ENGINN SÉR
Í sögunni er tekist á við þá brengluðu lífsmynd, ótta og vonleysi sem er afleiðing kynferðislegs ofbeldis. Aðalpersóna sögunnar er hin 13 ára Laufey sem býr með móður sinni, stjúpa og tveimur hálfsystkinum við kröpp kjör í fjölbýlishúsi í Breiðholti í Reykjavík. Hana hryllir við aðstæðum sínum en sér enga leið út úr erfiðleikunum.
 

HÉR Á REIKI
Hér á reiki er um Mettu, 13 ára borgarbarn sem kemst upp á kant við foreldra sína og umhverfið. Hún er vistuð gegn vilja sínum á afskekkt sveitaheimili þar sem gamlir búskaparhættir eru viðhafðir. Metta verður vör við eitthvað í umhverfinu sem enginn annar skynjar.

 

  SVARTA NÖGLIN
Svarta nöglin segir frá tvíburunum Hansa og Grétu sem bjarga sér á eigin spýtur þegar mamma þeirra er að vinna. Yfirleitt gengur allt vel en þó kárnar gamanið þegar óvelkominn gestur hreiðrar um sig á heimilinu. 
 

KOMDU AÐ KYSSA
Komdu að kyssa er sjálfstætt framhald sögunnar Óttinn læðist. Segir þar frá Elínu í nýju umhverfi eftir eldgosið. Vandamál setja svip sinn á lífið og Elín er gagnrýnin á foreldra sína og umhverfið. Sjálf er hún að kynnast ljúfsárum tilfinningum fyrstu ástarinnar. Á sama tíma leiðist hún út í vafasöm athæfi með vinkonum sínum.

 

  ÓTTINN LÆÐIST
Óttinn læðist er sótt í reynsluheim höfundar og segir frá lífinu á Heimaey. Áhyggjuleysi æskunnar sumarbjarta daga blandast dulúð og ógn er líður á söguna. Hin tíu ára Elín er næmari á umhverfi sitt en aðrir. Það sem hún skynjar gerir hana hrædda. Hið óvænta eldgos sem hrakti alla íbúa bæjarins á braut er hér viðfangsefni höfundar.
 

SARA
Sara er 13 ára barn nýskilinna foreldra. Hún á erfitt með að fóta sig í nýju umhverfi og finnst hún vera afskipt í heimi fullorðinna sem ekkert tillit taki til tilfinninga og þarfa unglinga. Hún kynnist krökkum sem hafa svipaðar skoðanir og hún og hrífst með af spenningi sem fylgir skuggaveröld þeirra.

 

  ÞEGAR STÓRT ER SPURT
Þegar stórt er spurt... er framhald sögunnar Þið hefðuð átt að trúa mér. Þeir Tommi og Árni eru í sveit hjá ömmu og afa Tomma. Hver dagur er öðrum skemmtilegri og strákarnir eru fróðleiksfúsir. Það er gott að eiga ömmu og afa sem fúslega svara öllum spurningum. Drengirnir eru glöggir og þegar vinur þeirra verður fyrir óskemmtilegri reynslu taka þeir til sinna ráða.

ÞIÐ HEFÐUÐ ÁTT AÐ TRÚA MÉR
Þið hefðuð átt að trúa mér er skemmtileg saga um Tomma og vin hans Árna. Þeir félagar eru sannfærðir um að innbrotsþjófar hafi flutt í blokkina þeirra, en enginn trúir þeim. Árni býr einn með móður sinni en það er þeim félögum brennandi áhugamál að móðirin og faðirinn nái saman. Á broslegan máta fléttar höfundur saman gamni og alvöru.

 

  SPOR Í RÉTTA ÁTT
Spor í rétta átt. Sagan segir frá sambandi Maríar og Ragga. Marí sinnir engu ráðleggingum ættingja eða vina. Hún ætlar að lifa lífinu eins og henni sjálfri sýnist, hvað sem aðrir segja, en þá...
 
VIL, VIL EKKI
Vil, vil ekki er rómantísk ástarsaga ungrar stúlku sem hefur lifað í vernduðu umhverfi. Hún er óvænt vakin til vitundar um sjálfa sig og þá reynir á styrk hennar og sjálfstæði til að greina á milli eigin vilja og annarra.
  UNDIR REGNBOGANUM
Undir regnboganum fjallar um 11 ára telpu sem á heima í þorpi norðanlands. Móðir hennar slasast og hún verður að fara til ættingja sinna í Reykjavík. Ekki líður á löngu þar til hún er orðin þátttakandi í lífi hinnar glaðværu fjölskyldu á nýja heimili sínu þar sem hver dagur er ævintýri líkastur.